Flýtileiðir
  • Venjulegt letur
  • Stórt letur

Hjartarannsókn til þín?

Meginmál
Hjartarannsókn býður fyrirækjum og hópum að sérfræðingar Hjartarannsóknar haldi fyrirlestur um eðli hjartasjúkdóma, áhættuþætti þeirra og greiningu. Á fyrirlestrinum er einnig fjallað um þá þætti sem hver og einn getur haft áhrif á í sínu lífi og skipta svo miklu máli í baráttunni við hjarta- og æðasjúkdóma, eins og mataræði, hreyfingu og lífsstíl.

Ekkert gjald er fyrir fyrirlesturinn
.  Lágmarksfjöldi er  40 manns og getur fyrirlesturinn verið haldinn hvort sem er á viðkomandi vinnustað eða í húsnæði Hjartaverndar að Holtasmára 1, Kópavogi.  Pantanir skulu sendar á info@hjartarannsokn.is eða í síma 585-4700.