Flýtileiðir
  • Venjulegt letur
  • Stórt letur

Áhættumat

Meginmál
Val á mælingum hefur verið aðlagað að nýrri þekkingu á áhættuþáttum kransæðasjúkdóma og sykursýki og áhersla lögð á markvissa greiningu. Matið er kerfisbundið fyrir hvern einstakling. Mögulegt er að gera frekari rannsóknir svo sem áreynsluþolpróf og ómun hálsæða eftir ákveðnum vinnureglum ef ábending er fyrir hendi. Áhættureiknivél Hjartaverndar er notuð við þetta mat.

Ráðgjöf er markviss og einstaklingsmiðuð. Boðið er upp á meðferð áhættuþátta ef við á og tryggt að rannsóknaniðurstöðum verði fylgt eftir.

Tilgangur áhættumats
1. að greina áhættuþætti og meta áhættu á einstaklingsgrunni
2. að greina sjúklinga með áður óþekktan kransæðasjúkdóm
3. að veita einstaklingsmiðaða ráðgjöf um lífsstílsbreytingar
4. að hefja meðferð við áhættuþáttum ef við á
5. að beina þeim sem þarfnast frekari sérfræðimeðferðar í réttan farveg