Flýtileiðir
  • Venjulegt letur
  • Stórt letur

Fyrirtækja þjónusta

Meginmál

Fyrirtækjum stendur nú til boða að fá ítarlegt áhættumat fyrir sitt starfsfólk. 

Hjúkrunarfræðingar hitta fólk á vinnustaðnum og gera mælingar og taka blóðprufur. 
Kosturinn við þetta er að fólk kemur einungis einu sinni í höfuðstöðvar Hjartarannsóknar en í þeirri heimsókn er tekið hjartalínurit, skoðun og viðtal.

Fyrirtækjum stendur til boða að fá fyrirlestur um þá þætti sem hver og einn getur haft áhrif á í sínu lífi og skipta svo miklu máli í baráttunni við hjarta- og æðasjúkdóma, eins og mataræði, hreyfingu og lífsstíl.

Þjónustan hefur mælst vel fyrir en fá má upplýsingar og leita tilboða á info@hjartarannsokn.is eða í síma 585 4700.